Leita í fréttum mbl.is

Nammi namm =)

Ó já drengurinn var sko hrifinn af grautnum Wink við mæðgur skiptumst á að skófla upp í hann og Ingibjörg auðvitað dressuð í kjól! Það var alveg yndislegt að fylgjast með þessu, hann iðaði allur, greip í skeiðina og vissi svo varla hvað hann átti að gera við þetta gums sem var komið upp í hann Grin Bara gaman. Þetta var auðvitað myndað í bak og fyrir, bæði á myndavél og upptökuvél.

Annars er þessi elska 6 mánaða í dag og er orðinn 9,5 kg og 72 cm. Fékk fína skoðun hjá doksanum og svo rétt rumdi í honum við sprautuna. Er með það á hreinu að þetta verður hörkutól - rétt eins og móðirin *hóst* Tounge 

Og ekki nóg með að í dag hafi verið fyrsti grauturinn, heldur fór ég líka og sótti um fyrir hann á leikskólanum! Ó já - today is the day Cool

Fyrsta skeiðin - allir lifa sig vel inn í þetta Wink

jan 039

Og þá var komið að Ingibjörgu að gefa bróður sínum. Og jájá ég enn með opinn munninn Grin

jan 045

 "Svona drífið nú í þessu!!"

jan 052

Nammi nammi namm - litli grautastrákur Happy

jan 053

Vona að ykkur hafa þótt þetta jafn skemmtilegar myndir og mér Wink Eigi þið góða helgi. 

- Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.

Einar Benediktsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Steinunn Þóra (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 08:37

2 identicon

Þetta eru æðilsegar myndir. Ingibjörg að sjálfsögðu í kjóll þetta er stór áfangi í lífi litla bróður hún er æði.. En frábærar myndir maður lifir sig alveg inn í þær. Flott myndin af Ingibjörgu frá siggu þrúðu alveg kominn í sinn heim..

Kveðja 

Sigga Magga (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 09:50

3 identicon

Skemmtilegar myndir. Gaman að sjá hvað hann virðist hrifinn af grautnum - eða skeiðinni? :)

Dagbjört (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 14:23

4 identicon

Þetta er BARA yndislegt! Ekki síður gaman að sjá munnsvipinn á þér á meðan (ég geri þetta líka).

Jóhanna (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 20:08

5 identicon

Til hamingju með hálfs árs afmælið, tíminn flýgur áfram. Skemmtilegar myndir, greinilegt að litla karlinum fannst þetta gott

kv.Sunna

Sunna (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 00:46

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk fyrir skilaboðin, Úrsúla :)

Gaman að sjá myndirnar hjá þér, jiminn hvað tíminn flýýýgur...!!!

Knús, S.

SigrúnSveitó, 19.1.2009 kl. 07:50

7 identicon

Alveg magnað...

Heiða Árna (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 13:48

8 identicon

Jáhá þú segir nokkuð, sé að þú hefur alveg tíma til að taka fleiri fög í skólanum, hér á bæ gleymist að segja frá því að fyrsta tönnin fannst fyrir nokkru :-S

Júlía (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 08:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Úrsúla Manda
Úrsúla Manda

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband