Jæja þetta er síðasta færslan mín - ég er hætt að blogga. Efa stórlega að ég byrji aftur. EF ég byrja einhvern tíman aftur að blogga þá verður það bara inni á barnalandssíðu krakkanna. Verð þá dugleg að skipta um lykilorð reglulega, en fjölskyldumeðlimir Heimis eru víst einkar hrifnir af því  best af öllu er þó að fólkið virðist ekki geta sent mail til að biðja um nýtt lykilorðið  en isss það er ekki minn höfuðverkur!!
Jamm segjum þetta því gott í bili og ég þakka ykkur, mínum dyggu lesendum  fyrir mín 6 ár í bloggheiminum. Hafið það gott.
Auf Wiedersehen.
Mikið svakalega var nú gaman á sveitablótinu í gær. Við skemmtum okkur konunglega. Ég sagði það líka að hér eftir yrðum við fastagestir á þessum blótum og er ég búin að tryggja mér pláss  Ég er búin að ákveða að skella mér á allaballablótið um næstu helgi með mömmu og pabba. Ég bara verð! Heimir verður þá bara heima. Eitthvað var ég að reyna að reikna aftur í tímann og sennilega hef ég ekki farið í ein 10 ár eða svo á allaballablótið. Allavega síðast þegar ég var þá var Helga Steins með í annálnum og það er laaaangt síðan hún hætti. Svo ég er bara spennt fyrir næsta laugardagskvöldi  Í dag er mér samt búið að líða eins og ég hafi farið á ærlegt fyllerí! Það fór samt ekki áfengisdropi inn fyrir mínar varir þar sem drengurinn er enn á brjósti. En það komu nú móment í gærkvöldi þar sem ég hefði alveg verið til í að vera að hella í mig  En það verður bara á næsta ári... þ.e.a.s. ef ég verð ekki ólétt þá  Verð nú samt að segja að ég hef nú alltaf lúmskt gaman af því að vera edrú og fylgjast með liðinu í kring.
Þar sem ég er frekar framlág er ég að hugsa um að koma mér bara snemma í bælið - svona einu sinni! Ég kláraði Auðnina um daginn og varð ekki fyrir vonbrigðum. Núna ætla ég að klára Áður en ég dey, en ég er hálfnuð með hana og skella mér svo á Arnald.
Það er hvorki hættulegt né skammarlegt að detta - en að liggja kyrr er hvort tveggja.
Konráð Adenauer
Ákvað að henda inn smá færslu svona áður en ég dett úr öllu bloggstuði og nenni þá ekki að skrifa neitt næstu vikurnar!
Við skötuhjú ætlum að skella okkur á þorrablót um helgina. Hlakka mikið til að gúffa í mig öllum þessum guðdómlega mat. Fyrsta skipti sem ég fer á sveitablót. Rosalega langt síðan ég fór á blót, man hreinlega ekki hvað er langt síðan ég fór síðast á allaballablót. Þau eru alltaf svo skemmtileg, annállinn sniiiiiild. Held ég fari ekki á það núna, fer bara næsta ár.
Veit svo sem ekki hverju ég á að ljúga í ykkur. Ætla upp í rúm að lesa Yrsu - ég veit ég er enn að lesa hana. Á nú samt ekki nema 50 bls eftir eða svo, svo þetta hlýtur að takast hjá mér  Næstur í röðinni er svo hann Arnaldur karlinn.
- Hvar sem mest var þörf á þér, þar var best að vera.
Stephan G. Stephansson.
Ó já drengurinn var sko hrifinn af grautnum  við mæðgur skiptumst á að skófla upp í hann og Ingibjörg auðvitað dressuð í kjól! Það var alveg yndislegt að fylgjast með þessu, hann iðaði allur, greip í skeiðina og vissi svo varla hvað hann átti að gera við þetta gums sem var komið upp í hann  Bara gaman. Þetta var auðvitað myndað í bak og fyrir, bæði á myndavél og upptökuvél.
Annars er þessi elska 6 mánaða í dag og er orðinn 9,5 kg og 72 cm. Fékk fína skoðun hjá doksanum og svo rétt rumdi í honum við sprautuna. Er með það á hreinu að þetta verður hörkutól - rétt eins og móðirin *hóst*
Og ekki nóg með að í dag hafi verið fyrsti grauturinn, heldur fór ég líka og sótti um fyrir hann á leikskólanum! Ó já - today is the day
Fyrsta skeiðin - allir lifa sig vel inn í þetta
Og þá var komið að Ingibjörgu að gefa bróður sínum. Og jájá ég enn með opinn munninn
"Svona drífið nú í þessu!!"
Nammi nammi namm - litli grautastrákur
Vona að ykkur hafa þótt þetta jafn skemmtilegar myndir og mér  Eigi þið góða helgi.
- Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.
Einar Benediktsson
Ég hef aldrei verið neinn sérlegur aðdáandi KK, en allt í einu er ég alveg að fíla karlinn  Finnst lagið hans um æðruleysið gott og nú dauðlangar mig að lesa bókina hans. Ég meina maðurinn bjó á götunni í einhver ár!! Hann hlýtur að hafa frá mörgu áhugaverðu að segja.
Skoðun og sprauta hjá prinsinum á morgun. Mikil spenna í gangi eins og alltaf, að sjá kílóafjöldann. Held hann sé nú ekki kominn í tveggja stafa töluna ennþá, en er örugglega ekkert langt frá henni  Nú og svo er það grauturinn annað kvöld og Ingibjörg stendur enn föst á því að við eigum að vera í kjólum!
Læt fylgja hér eina mynd af Ingibjörgu úr myndatökunni hjá Siggu Þrúðu. Mér finnst þetta falleg mynd - hún er eitthvað svo dreymin þarna.
- Þú getur ekki hindrað fugla sorgarinnar í að fljúga yfir höfði þínu. En þú getur komið í veg fyrir að þeir geri sér hreiður í hári þínu.
Kínverskur málsháttur.
Alveg er það nú merkilegt hvað kennarar leyfa sér stundum að taka langan tíma í að fara yfir prófin. Við eigum að skila öllum okkar verkefnum á RÉTTUM tíma annars getum við verið dregin niður fyrir að skila of seint. Ég tók prófið 12. des og fékk einkunn núna 12. jan!! Mánuði seinna! Jú ég veit að jólin komu þarna inní. Þeir áttu í síðasta lagi að skila öllum einkunnum frá sér 9. jan, en nei tók þá nokkra daga lengur. Ferlega svekkjandi! En ég fékk nú fína einkunn svo ég ætla ekkert að kvarta meira yfir þessu
Heimir er kominn heim - á Austurlandið - ekki heim-heim, en það fer nú að styttast í hann hugsa ég.
Jæja ég ætla að fara að prjóna og horfa á tv.
Lát mig deyja þegar stundin er komin. - Ég óska þess eins að þeir sem þekktu mig best segi um mig að ég hafi ætíð slitið upp þyrni og gróðursett blóm þar sem ég hélt að blóm gætu vaxið.
Abraham Lincoln.
Hér sit ég ein við kertaljós og kósýheit, til skiptis í tölvunni og að prjóna. Heimir fór suður í morgun á námskeið og kemur heim aftur á morgun. Ingibjörg sofnaði í sínu herbergi en ég ætla nú að færa hana yfir til mín á eftir þegar ég fer að sofa... notalegra að hafa einhvern í hinum helmingnum af rúminu. Spurning hvort ég þori að lesa Yrsu með Ingibjörgu hjá mér eða hvort ég guggni
Veit svo sem ekki hverju ég get logið að ykkur... er svona að reyna að koma mér í skólagírinn, finnst það svolítið erfitt eftir gott frí. Finnst líka erfitt að ætla að fara á fætur um 9 eða svo. Get það bara eiginlega ekki, svo við Ármann Snær lúllum okkur bara þar til við vöknum
- Gerðu eitthvað gott - nágranni þinn fréttir það aldrei. Gerðu eitthvað illt - það mun verða alræmt.
Kínverskur málsháttur.
Nú fær litli herramaðurinn hér á bæ að borða næsta föstudag. Mikil spenna í gangi get ég sagt ykkur, og stakk Ingibjörg upp á að við yrðum í kjólum í tilefni þess  Ég er búin að vera að skoða grautategundir og held að ég kaupi Holle. Hann er lífrænt ræktaður og sykurlaus. Líst vel á hann. Tennur númer 5 og 6 hjá drengnum ryðjast niður núna - bara örlítil himna fyrir og þá eru þær komnar í gegn. Sá er duglegur í þessum málum. Svo fyndið hvað þau breytast þegar efri framtennurnar eru komnar... æji þetta er allt svo yndislegt og skemmtilegt
Set hér inn eina mynd af okkur Leó. Þetta er semsagt að kvöldi "aðgerðardagsins", hann náði að skríða upp í fangið á mömmu sinni  þar sem honum finnst jú best að vera.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur hið sama;
en orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
Hávamál.
Svona fyrir þá sem hafa brennandi áhuga á heilsu Leós (veit að það eru sko nokkrir ) þá er hann eiginlega orðinn eins og hann á að sér að vera. Nema auðvitað grænblár og sköllóttur að aftan. En það var ósköp notalegt að heyra aftur malið hans í morgun, hann hafði nefnilega ekkert malað í gær og var ég farin að sakna þess. Fór allt í einu að hugsa hvað væri skrítið ef hann væri ekki hérna hjá okkur. Og hafi einhvern tímann læðst sú hugsun að mér að senda hann í sveitina (sökum ofnæmis hjá mér) að þá er ég snarlega hætt við! Svo ætli við eigum ekki bara Leó næstu fimmtán árin eða svo  ljúf tilhugsun.
Ingibjörg gistir hjá ömmu sinni og skemmtir sér vel. Svo sem ekkert skrítið, þar sem allt annað er sett á hold þegar hún er hjá þeim og öll athygli beinist að henni. Endalaust leikið og bara skemmtilegt
Er að fara að byrja á spennandi prjónaverkefni á sjálfa mig, aldrei þessu vant. Fékk garnið í dag en þá voru ekki til prjónarnir!! Mikið er svekkjandi að geta ekki byrjað. Horfi bara á garnið og það á móti... ohhh
Langar rooosalega að lesa ævisögu Eric Claptons - á hana einhver?
Í hendi Guðs er hver ein tíð,
í hendi Guðs er allt vort stríð,
hið minnsta happ, hið mesta fár,
hið mikla djúp, hið litla tár.
Matthías Jochumsson
...hefur það svona sæmilegt. Ekkert mikið meira en það. Hann meig auðvitað á sig og ældi svo á eldhúsgóflið í kvöld. Greyið litla. En svo hefur hann bara að mestu sofið. Staulast aðeins um og rásar eins og hann sé fullur. Mér dauðbrá þegar ég kom og sótti hann, þá lá hann í búrinu sínu enn sofandi eftir svæfinguna, með opin augun og alveg eins og hann væri dáinn. Og svo auðvitað alveg rakaður að aftan og grænblár í þokkabót eftir joðið! Svei mér þá, ég hljóðaði alveg upp yfir mig og sagði við dömuna að ég gæti ekki ímyndað mér að hann ætti nokkurn tímann eftir að verða eðlilegur aftur! En ég vona nú að hann verði hressari á morgun - trúi bara ekki öðru.
Komin helgi og Heimir er að vinna alla helgina - skemmtilegt
Er farin upp í rúm að lesa.
... hjörtum mannanna svipar saman í Súdan og Grímsnesinu.
Tómas Guðmundsson
Já hún fer fram klukkan 11 á morgun. Mig er nú farið að kvíða fyrir. Búið að hræða mig með allskonar sögum um hvernig kettir verða eftir svæfingu. Vona bara að Leó standi þetta ágætlega af sér. Er búin að taka til handklæði og annað til að hafa bæði undir honum og ofan á. Vona bara að hann æli ekki - gæti dílað við drullu, en helst ekki ælu... kattarælu! Annars er spurning um að Heimir taki sér frí eftir hádegi til að aðstoða mig í þessu  Ég er búin að kaupa silungapaté til að gefa Leó þegar við komum heim. Æjj greyið litla, ég dauðvorkenni honum. Ljósið í myrkrinu er þó að hann fer ekki illalyktandi í þessa aðgerð, nei Ingibjörg bar á hann bodylotion!!
Eitt svona í lokin... ætla að benda ykkur á að þegar ég hef ekki bloggað í X langan tíma, þá commenta hinir og þessir um að ég verði nú að fara að blogga. Einnig er ég spurð út í búð hvað sé eiginlega í gangi með mig, hvort ég sé bara hætt og fleira í þeim dúr. Nú hef ég bloggað 6 daga af þessum 8 dögum sem liðnir eru af árinu og enn hefur ekki eitt comment komið frá þessum manneskjum! Tussist (í boði Þóreyjar) nú til að kvitta!! Say no more... en takið það til sín sem eiga það
- Eitt kærleiksorð getur sálir til himins borið.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
Ég var að geyspa golunni hérna fyrr í kvöld, þurfti svo inn til Ármanns til að gefa honum og sofnaði auðvitað. Svo núna eftir ca. hálftíma svefn, er ég alveg til í allt!
Fór að hugsa um þvottamál í dag þegar ég var að brjóta saman þvott og beið eftir að vélin kláraði sig. Sumir hafa einn þvottadag í viku en aðrir þvo bara jafnóðum. Ég er svona meira í þeim gírnum, þvæ 1-2 vélar á dag og einstaka sinnum tek ég einn dag frí. Man þegar ég var ein og bjó á Austurströndinni... þá þvoði ég tvær vélar ca. einu sinni í viku, ef það náði því þá, stundum voru þetta tvær vélar á tveggja vikna fresti! Alveg finnst mér það nú magnað og fyndið að hugsa til þess svona miðað við hvernig staðan er í dag  Verst hvað mér finnst leiðinlegt að brjóta saman þvottinn og ganga frá honum... finnst nefnilega mjög gaman að setja í vélina og hengja upp.
Já þetta eru svona pælingar dagsins hjá mér
- Við erum öll landkönnuðir í lífinu - hvaða leið sem við höldum.
Friðþjófur Nansen
Var að skoða öll jólakortin sem við fjölskyldan fengum í ár. Það er svo gaman. Mér finnst svo magnað þegar stendur "Elsku Úrsúla Manda, Heimir Snær og börn". Og BÖRN - það finnst mér hljóma mjög fullorðins  Ætli það þýði ekki bara að ég sé orðin fullorðin... svona ef ég skyldi hafa verið í vafa.
Þeim fjölgar "bréfunum" sem maður fær, það er svolítið sniðugt. Gera svona stuttan annál þar sem stiklað er á stóru hvað á daga fjölskyldunnar hefur drifið síðastliðið ár. Hugsa að ég eigi einhvern tímann eftir að gera þetta, svona þegar börnin eru farin að gera eitthvað meira en að vera í leikskóla og á brjósti
Ég gæti hinsvegar bilast yfir glimmerinu sem stundum er í jólakortum! Hvað er málið? Þetta er ekki fallegt! Ég þvoði mér um hendurnar þegar ég var búin að fara yfir bunkann, en þegar ég leit svo í spegil og sá glitra í andlitinu á mér, fór ég í sturtu. Ekki skánaði það þegar úr sturtunni kom og ég sá glimmer í sófanum! Það var því lítið annað að gera en að ná í ryksuguna. Þetta er svo mikill viðbjóður að það er engu lagi líkt, þetta er allstaðar! Ég hef reyndar orðið varann á mér þegar ég opna jólakortin, opna umslagið og kíki ofan í hvort líklegt sé að það sé glimmer á kortinu. Ef svo er næ ég í einnota hanska og opna kortið yfir vaskinum. Já það er ekkert grín að vera með glimmer fóbíu.
Heimir er enn í vinnunni og börnin auðvitað sofnuð. Þetta þýðir það að ég fer ekki upp í rúm til að lesa Yrsu. Ég bara get ekki lesið hana þegar ég er "ein" heima. Það er þó skárra þó Heimir sé sofandi við hliðina á mér, ég get þá skriðið undir sængina og hjúfrað mig upp að honum svona þegar ónotatilfinningin nær algjörlega tökum á mér  Hef bara ekki oft upplifað svona tilfinningu við lestur einnar bókar, svei mér þá. Ég fer þá bara að glápa á eitthvað í tölvunni þangað til hann kemur heim.
- Það er ekki auðskorið úr því hver er gæfumaður. Oft leynist gæfa í ógæfulíki og ógæfa í gæfulíki.
Sigurður Guðmundsson skólameistari.
Fín helgi hjá okkur að baki. Á morgun tekur svo það hversdagslega við - Heimir í vinnuna, Ingibjörg í leikskólann og við Ármann Snær sofum fram að hádegi  Nei kannski ekki alveg. Ingibjörg er búin að vera í fríi síðan fyrir jól svo það verður fróðlegt að vita hvernig hún tekur því að fara á leikskólann aftur. Hún virtist nú ansi spennt áðan þegar við vorum að ræða þetta en svo er spurning hvort hún renni á rassgatið þegar hún verður skilin eftir. En það þarf ekkert að vera - þó mig gruni það.
Ég tók mig til í dag og pakkaði ÖLLU jólaskrautinu niður. Þ.e.a.s. öllu nema seríunum. Ætlaði nú bara að taka niður jólatréð en svo bara gat ég ekki stoppað! En það verður gaman að taka þetta allt saman upp aftur í desember  Ég ætla hinsvegar að leyfa seríunum að vera uppi þar til í mars eða svo. Nauðsynlegt að lýsa upp skammdegið!
Nú byrjar skólinn í vikunni. Það er staðlota sem ég mæti ekki í. Ég verð í tveimur fögum núna og get ég alveg sagt ykkur að ég nenni ekki að byrja! Skil ekki hverslags leti þetta er eiginlega - en ég hlýt að jafna mig á þessu
Við tókum okkur rúnt inn í Fannardal í dag. Tók þessa mynd af trjánum inn í Bakkasel. Svo vetrarlegt og óskaplega fallegt finnst mér. Trén svo þung af snjónum.
Er að spá í að byrja aftur með gullkorn dagsins. Hvernig líst ykkur á það? Ég hef svo gaman að svoleiðis. Hér kemur það fyrsta.
- Maðurinn er aldrei stærri en þegar hann krýpur.
Blaise Pascal
Heimi tókst að vakna á réttum tíma í morgun og fara í vinnuna. Það er mér óskiljanlegt! Við börnin sváfum hinsvegar frameftir og héldum áfram þeirri leti sem einkennt hafa jólin hjá okkur. Ég þakka Guði fyrir að vera ekki í vinnu núna, það get ég sagt ykkur. Spurning um að stíla inn á fæðingarorlof næstu jól líka?!?!  Hahaha nei djók! Er svo engan veginn að nenna að byrja í skólanum aftur. Ég er bara alveg hræðilega löt núna... en æji það má alveg stundum.
Í næstu viku ætlum við mamma upp í Egilsstaði að láta gelda köttinn. Blessaður karlinn. Ætli þetta verði ekki líka verslunarferð hjá okkur - finnst það líklegt, kíkja á útsölur og svona.
Bókin hennar Yrsu - Auðnin, heldur mér alveg í heljargreipum. Finnst hún svo spúkí eitthvað og draugaleg. Mér líður meira að segja hálf ónotalega þegar ég fer að sofa á kvöldin - alveg satt. Held að þessi bók sé ekki fyrir myrkfælnar manneskjur.
Er enn að bíða eftir að einkunnin fyrir prófið detti inn. Þeir taka sér alveg tímann í þetta blessaðir. En hún hlýtur að fara að koma, í síðasta lagi á mánudaginn.
Ætla að fara að prjóna og horfa á unglingaseríuna 90210. Datt inn í hana um daginn. Algjör snilld!  Nokkrir leikararnir úr Beverly Hills þáttunum eruí þessari seríu. Ferlega skemmtilegt.