Færsluflokkur: Bloggar
25.10.2008 | 22:45
Laugardagskvöld
Ætla að minna ykkur á það að eftir tvo mánuði verður komið jóladagskvöld! Eftir nákvæmlega tvo mánuði verð ég upp í rúmi að lesa góða jólabók. Ohh hvað mig hlakkar til. Hugsið ykkur, aðeins 60 dagar til jóla! Jibbý
Búið að vera nóg að gera hjá okkur í dag. Ingibjörg byrjaði daginn í íþróttaskólanum (eða íþróttaÁLFAskólanum eins og hún kallar þetta) og svo fórum við í tvö afmæli. Byrjuðum hjá Degi Þór og enduðum hjá Írisi Ósk. Þvílíkar kræsingar á báðum stöðum, svo það má því segja að við séum að springa! Á morgun er það svo sunnudagaskólinn með ömmunni og á mánudaginn er frí í leikskólanum, svo ætli það verði ekki afslöppunardagurinn.
Ég er loksins að komast aftur í lesgírinn, ég datt alveg úr honum eftir að ég átti. Er að fara að byrja á nýjustu bók Lisu Marklund, Lífstíð. Finn samt að mér finnst svolítið óþægilegt að lesa mikið af spennusögum, það fer ekki vel í mig - getum orðað það svoleiðis Þyrfti að ná mér í eina góða ævisögu inn á milli. Annars á ég enn eftir að lesa Áður en ég dey og Kona fer til læknis. Þær eru aldrei inni á bókasafninu svo ætli ég endi ekki með því að kaupa mér þær! Ég skráði mig nú í enn einn bókaklúbbinn um daginn. Myndi segja að bækur væru minn veikleiki, stenst þær bara ekki. En þessi klúbbur heitir Handtöskuserían. Er búin að fá eina bók frá þeim sem heitir Beðmál í borginni Jújú hin eina sanna Sex in the City. Ég minntist nú á það um daginn við Heimi að ég þyrfti að fara að skrá Ármann Snæ í bókaklúbb, svona eins og Ingibjörg er í, en ég fékk frekar dræmar undirtektir. Spurning um að hunsa þær bara
Ferlega finnst mér þátturinn hennar Ragnhildar Steinunnar skemmtilegur. Maður kemst alveg í gírinn. Fannst æði að hlusta á Pál Óskar síðasta laugardag, hann er svo frábær.
Jæja, ætla að fara að prjóna og horfa á Sex in the City.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.10.2008 | 21:58
Huggó
Við Ármann Snær erum búin að eiga notalega morgna þessa vikuna. Heimir hefur farið með Ingibjörgu í leikskólann og þá hef ég skriðið upp í rúm og haldið áfram að sofa eftir að þau eru farin Þetta er auðvitað bara draumur þegar það er leiðinlegt veður og ísskalt úti. Svo ef Ármanni dettur í hug að rumska þá skelli ég fæðunni bara upp í hann og við höldum áfram að sofa Gott þegar fæðan er svona föst við mann, hefur allt sína kosti og galla.
Já það var klúbbur í gærkvöldi. Mjög gaman. Át og át og át. Sátum aftur til 2, svona er það í góðra vina hópi, þá þýtur tíminn áfram.
Vorum í mat hjá mömmu í kvöld. Fengum hriiiikalega góða súpu. Kjúklingasúpu. Ég át 3 diska! Verð að fá uppskriftina hjá henni og skella henni hérna inn. Algjört lostæti.
Ætla að fara að horfa á Chuck og prjóna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.10.2008 | 23:29
Ikke noget
Ætla bara að láta ykkur vita að ég ætla ekki að blogga í kvöld. Er nefnilega á facebook-inu Neinei hafði hugsað mér að fara snemma upp í rúm svona einu sinni. Það er nefnilega saumaklúbbur annaðkvöld og þá er eins gott að vera vel upplögð, síðast sátum við til 2.
Hafið það gott í snjónum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2008 | 23:26
Tímaþjófur
Já það er sko alveg á hreinu að fésbókin er tímaþjófur. Jahérna hér, þetta er alveg hrikalega skemmtilegt Er aðeins að ná áttum þarna en finnst umhverfið svolítið ruglingslegt ennþá. Það kemur. Ég hef hinsvegar ekki mikinn tíma í að gera neitt annað Ætlaði að byrja morgundaginn á því að læra, hlusta á fyrirlestur og svona, en ég er ekki að sjá það gerast *hóst*, alveg hægt að týna sér þarna skal ég ykkur segja! Samt spurning hvort þetta sé nýjungagirni í mér, það kemur í ljós. Heimir hristir bara hausinn. Ég var nú að reyna að hvetja hann til að skrá sig en hann tók það ekki í mál! Spurning hversu lengi það mun taka mig að buga hann nema að ég bara skrái hann!
Vetur konungur heilsaði í dag. Varð mjög jólalegt um tíma, hvít jörð, snjókoma og svona fjúk. Afar heillandi. Samt leiðinlegt við þennan kulda að þurfa að dúða alla í hvert skipti sem fara á út. Og þó það sé bara til að skjótast út í bíl. En þetta fylgir bara því að búa á Íslandi.
Ingibjörg var alsæl með sunnudagaskólann. Þetta verður því verkefni móður minnar alla sunnudagsmorgna í vetur spurning um að skella sér einhvern tímann með.
En jæja, ég ætla að henda myndum inn á barnalandið og segja þetta svo gott. Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.10.2008 | 21:48
Já ég er sko ekki lengur sú síðasta!! Nú er ég "inn" ég skráði mig semsagt á facebook-ið. Er nú bara svona að skoða þetta og átta mig á þessu öllu. Virðist nokkuð sniðugt, og alveg pottþétt að þarna er sko hægt að gleyma sér. Ég ætla nú samt ekkert að blogga þarna held ég, frekar að halda því bara áfram hér.
Ingibjörg er í mat og gistingu hjá ömmu sinni í kvöld. Það finnst henni svakalega skemmtilegt. Að fá að borða ein hjá ömmu og afa og mamma og pabbi ekki með er mikið sport. Svo ætla þær nöfnur að fara í sunnudagaskólann í fyrramálið. Hlakka til að heyra hvernig það fer. Hún hefur ekki farið áður. Þetta verður hlutverk mömmu sem guðmóðir hennar, að storma með hana í sunnudagaskólann spurning svo hvort að hin guðmóðirin leysi mömmu af þegar hún verður stödd hér í sveitinni
Var að baka eplakökuna góðu og prófaði, eins og Stella benti mér á, að borða Rommý með henni. Jammí gooott! Setti Rommýið semsagt ekki ofan í bökuna heldur hef það bara svona on the side.
Ætla að fara að horfa á Brothers & Sisters sem Brynja setti inn á tölvuna mína. Bið að heilsa ykkur í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2008 | 23:46
Nýjustu tölur
Allt gekk vel í skoðuninni í dag, Ármann Snær orðinn 8 kg og 65 cm, 3 mánaða aldeilis flott hjá honum. Þegar Ingibjörg var á sama aldri var hún 6 kg og 63,5 cm. Svo það er smá munur á þeim þó þau hafi fæðst nákvæmlega jafn stór. Mér finnst svo gaman að bera þau saman. Sprautan gekk líka vel, en drengurinn lét nú aðeins heyra í sér, skiljanlega. Hann virðist ætla að sleppa við hita og svoleiðis, en hann er hinsvegar búinn að vera frekar pirraður núna seinnipartinn og í kvöld. Hlýtur að vera út frá sprautunni.
Heimir er enn í vinnunni. Við mæðgur elduðum okkur pizzu, horfðum á sjónvarpið og höfðum það notalegt. Ingibjörg var nú samt sofnuð hér upp í sófa fyrir kl 9, alveg búin á því, svo það var nú takmarkaður félagsskapur af henni að hafa.
Það er íþróttaskóli á morgun, hann er byrjaður aftur við mikla gleði hjá dömunni. Annars ekkert mikið planað um helgina, held að markmiðið sé að reyna að taka almennilega til í bílskúrnum. Ekki veitir af. Góða helgi öll sömul.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.10.2008 | 22:56
Greys lofar góðu
Ohhh þeir eru alveg að gera sig þessir þættir sko! Þetta er bara snilld get ég sagt ykkur. Er semsagt búin að horfa á þrjá þætti og ég skal lofa því að tjá mig ekki um þá hér, svo Júlía mín þér er óhætt Nú þarf ég að ná mér í Brothers & Sisters þættina ásamt Private Practice. Algjört must!
Ármann Snær fer í 3ja mánaða skoðun og sprautu á morgun. Fyrstu sprautuna sína. Vona að hann verði hress eftir hana blessaður. Hlakka svo til að heyra nýjustu tölur, en okkur finnst hann aðeins hafa hægt á vextinum - þverveginn
Ég er ekki enn búin að fá mér facebook. Ætli ég sé ekki sú síðasta, fyrst Jóhanna er núna búin að fá sér það segja allir að þetta sé svo sniðugt, en ég veit satt að segja ekkert út á hvað þetta gengur. Er hægt að blogga þarna eða hvað á maður að gera? Getur maður spjallað eins og á msn? Skil þetta ekki.
Jæja ég ætla *snemma* í rúmið í kvöld og lesa smá. Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.10.2008 | 23:40
Grey's
Ég sprakk auðvitað á limminu og er búin að ná mér í 3 fyrstu þættina af Greys! Þóra Matthildur var búin að gera mig svo forvitna og ekki batnaði það þegar Brynja fór líka að tala um þá, svo ég bara VARÐ! Hugsa að ég horfi nú líka á þá í sjónvarpinu. Verst samt að geta ekki tjáð sig um þættina hér þegar ég verð búin að horfa
Takk fyrir skemmtileg comment við síðustu færslu. Það er svo gaman þegar það er kvittað, þá nennir maður líka frekar að blogga.
En nú ætla ég að byrja á Greys. Bíð ykkur góðrar nætur með mynd af þessum draumaprinsi mínum - sem finnst mamma sín alveg sú skemmtilegasta Auðvitað!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.10.2008 | 23:40
Senn koma jólin
Ég er farin að hlakka all verulega til jólanna. Það er svo ótrúlega stutt í þau, tíminn þýtur jú áfram. Mikið verður nú gaman! Við erum búnar að plana (já ég og mamma) hvernig við ætlum að hafa þetta allt saman. Hvað verður í matinn og hvar við ætlum að vera. Ég er líka voða spennt fyrir jólasveinadæminu eins og alltaf, og hlakka til að sjá hvernig Ingibjörg bregst við þessu öllu núna, þar sem hún hefur meiri skilning á þessu en fyrir ári síðan. Hlakka til að skreyta allt í íbúðinni, setja seríurnar í gluggana og það allt. Hugsa að ég skreyti um miðjan nóv, kannski fyrr. Er líka búin að ákveða að opna jólakortin UM LEIÐ og þau berast! Fannst ekkert svo mikið fútt í að geyma þau öll eins og mér tókst að gera í fyrra. Frekar bara að opna þau strax. Það verður auðvitað ÆÐI að taka upp pakkana með Ingibjörgu og sjá hvar Ármann Snær verður, þá 5 mánaða. Get ekki beðið eftir að geta farið að hlusta á jólalög, skrifa jólakort og borða smákökur. Mikið er þetta ljúfur tími sem framundan er, dimmt og notalegt, kertaljós og snjór
Ég var á foreldrafundi á leikskólanum áðan og þar var verið að ræða desembermánuðinn og hvað framundan er. Mikið gaman allt saman. Þetta er í fyrsta sinn sem Ingibjörg er á leikskóla hér á Íslandi yfir þennan tíma, svo ég hlakka ægilega til. Hlakka til að syngja með henni jólalög, fara á piparkökudaginn með henni og gera margt fleira skemmtilegt! Svei mér þá, það er bara gleði framundan hjá mér
Ég fer svo í próf 12. des. Ég ætla nú að reyna að halda ró minni yfir því. Held líka að þetta sé nokkuð þægilegt próf, ef þið skiljið hvað ég meina.
Jamm og já, nú fer ég að sofa með gleði í hjarta yfir komandi tímum. Gleðileg jól... meina góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
13.10.2008 | 23:59
Spennt
Ég bíð spennt eftir að Grey's byrji aftur. Get bara ekki beðið! Mér sýnist þetta vera alveg sjúklega spennandi, svona miðað við kynninguna. Sýnist á henni að McDreamy slasist ógurlega. Trúi samt ekki að hann deyji, það getur bara ekki verið. Þá væri þetta bara búið.
Langaði bara að deila þessari spennu með ykkur svona rétt fyrir svefninn Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja