29.10.2007 | 09:51
Ef þú ert kennari...
Þetta fékk ég sent frá einni sem er með mér í skólanum. Verð að deila þessu með ykkur því mér finnst þetta hryllilega fyndið!! Ég meina, sjái þið þetta fyrir ykkur ef maður myndi framkvæma eitthvað af þessu? Jesús góður!
-Talaðu alltaf lægra og lægra en svo í lokin, bentu á einn nemandann og öskraðu : "HVAÐ VAR ÉG AÐ SEGJA!!!??"
-Kenndu með fingrabrúðum
-Veldu af handahófi einhvern nemanda, spurðu svo ýmsar spurningar og taktu tíman meðan hann svarar... fussaðu svo og sveiaðu þegar hann svarar
-Segðu nemendunum að kalla þig "Ljómalind" eða "Pétur Pan"
-Stoppaðu í miðri kennslu allt í einu, grettu þig og spurðu nemendurna hvort þú sért með feitann rass
-Vertu með speglagleraugu og talaðu bara tyrknesku... láttu sem þú heyrir ekki í nemendum
-Byrjaðu kennsluna á að syngja og dansa "Sex Machine" eftir James Brown
-Leggðu nemendum fyrir það heimaverkefni að lesa frá Jóhannesi til Njarðar í símaskránni fyrir næsta tíma... og taktu fram að það verði próf
-Láttu alltaf tvo nemendur dreifa rósarblöðum á undan þér þegar þú labbar um stofuna
-Biddu nemanda aðeins um aðstoð upp við töflu... láttu þá skrifa undir samning meðan þú græjar á þig stálbrynju og stingur slípirokknum í samband.
-Byrjaðu kennsluna á því að brjóta tappann af vodkaflösku og öskra: "TÍMINN ER BÚINN, ÞEGAR FLASKAN ER BÚIN!"
-Láttu eins og kennslustofan sé full af vatni og syntu um allt!
-Urraðu á nemendurna og kallaðu þá alltaf "háseta"
-Komdu með lítinn hvolp í tíma... alltaf þegar einhver spyr þig spurningar, þá ferð þú og spyrð hvolpinn
-Vertu í bleikum kjól, með englavængjum og biddu alla að kalla þig "Krúselíus!"
-Hnerraðu framan í nemendurna
-Komdu hlaupandi inní kennslustofuna, froðufellandi og öskraðu ! "ERU ÞIÐ Í STUÐI!!!???? ÉG HEYRI EKKI Í YKKUR!!! ERUÐI Í STUÐI!!??!??!
Annars er bara mígandi rigning hér í dag. Það er þá hægt að bóka það að Ingibjörg fari ekkert út í dag!! Meiri vitleysan! Ég er að reyna að koma mér í lærdómsgírinn og er að bíða eftir að stytti upp til að skjótast út í búð.
Hafið það gott í dag.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja
Athugasemdir
Hér er jólasnjór og SD var úti í morgun....lengi! Svooo notó að geta kíkt út um gluggann á hann
Smill (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 12:38
Djöfull er þetta fyndið. Er búin að vera í kasti hérna. Þá aðallega við tilhugsunina við það ef Draupnir léti svona við sína nemendur í æfingakennslunni í austurbæjarskóla ;) Sé þetta alveg fyrir mér. Algjörlega húmor að mínu skapi.
Þoka (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 15:50
Ég verð að viðurkenna að mér fannst þetta ekkert fyndið fyrr en ég fór að ímynda mér Draupni að gera þetta.
Steinunn Þóra (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 09:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.