7.1.2008 | 22:44
Búin...
Það er nú bara úr mér allur vindur eftir þennan fyrsta skóladag, svei mér þá. Fór í fyrsta námskeiðið á kjörsviðinu sem ég valdi mér og líst mér vel á. Námskeiðið heitir Inngangur að samfélagsgreinum. Kennarinn er æði og ákvað hann að sleppa öllum prófum og hafa frekar 5 verkefni eða svo yfir önnina sem myndu þá gilda 20% hvert. Aldeilis flott. Tveir áfangar eru því próflausir svo ég tek bara tvö próf í vor. Það var svakalega gaman að hitta allar stelpurnar Fórum svo fjórar saman eftir skólann í dag í Kringluna á kaffihús og áttum notalega stund.
Ég er alveg að sofna, ætla að slökkva ljósið og setja Greys af stað. Vona að ég nái eins og einum þætti áður en ég svíf í draumaheiminn, og dreymi svo bara Dr. McDreamy... eða bara Heimi í læknaslopp Þarf ekki að mæta í skólann á morgun fyrr en klukkan 12, hoho svo ég fæ að sofa út! Bið ykkur vel að lifa.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja
Athugasemdir
Hugsaði til þín hinumegin við vegginn þegar klukkan okkar hringdi klukkan 6:30, geisp. Eigðu góðan dag
Júlía Rós (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 08:15
Er búin að ná í private practice (þættirnir með rauðhærða lækninum sem var í Greys) Þeir eru æði, verð að láti þig fá þá.
Brynja (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 00:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.