14.1.2008 | 22:55
Hitt og þetta
Þá er ég búin að taka mér vikufrí frá blogginu, svo nú er best að hefjast handa á ný. Langaði að deila þeim gleðifregnum með ykkur að við skötuhjú erum að fara að fjölga mannkyninu!! Já ég er semsagt ófrísk og er að detta í 15 vikuna. Þá viti þið það Ég er sett um miðjan júlí, 11. 12. eða 14. eru þær dagsetningar sem ég hef heyrt, en ég hef ákveðið að eiga 8. júlí. Við sjáum svo til hvernig það fer, allavega tók Ingibjörg ekkert mark á mínum óskum og beið í nákvæmlega 2 vikur framyfir settan tíma. Ég fór í hnakkaþykktarmælinguna fyrir sunnan í síðustu viku og kom allt vel út, svo nú er bara að bíða og hlakka til
Já ég er komin aftur heim til Neskaupstaðar. Það gengur svo vel hjá Heimi að pakka niður og ganga frá öllu að hann náði að snúa mér frá því að koma. Og ég er sko bara sátt að losna við þetta stúss Pabbi hans fór út og er að hjálpa honum, svo hann er nú ekki aleinn blessaður. Vonandi kemst hann bara sem fyrst heim! Við fáum afhent 1. feb, ótrúlega stutt í það, og er ég mjög spennt
Það var mikið að gera í Reykjavíkinni eins og alltaf. Mikið um að vera í skólanum, en samt alltaf gaman. Ég hafði það gott í Vogunum og náði að hitta hina og þessa. Við Sigurlaug áttum góðan eftirmiðdag saman og enduðum á Fridays. Við erum ekki mikið fyrir að breyta til Eins eyddi ég degi með Heiðu, kíktum í Smáralindina og átum góðar pizzur.
Ég held samt að ég fari ekki lengra en til Egilsstaða næstu tvo mánuðina eða svo. Nenni ekki þessum þvælingi lengur! Um miðjan mars verður svo seinni staðlotan, svo þá er næsta ferð suður.
Kristjana á afmæli í dag... til lukku mín kæra
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja
Athugasemdir
já þá er það orðið opinbert... gott að allt leit vel út. Heppin að sleppa við að fara út að pakka.. held að það sé það allra leiðinlegasta sem ég geri að pakka niður dótinu mínu fyrir flutning :( ojoj allt annað að koma sér fyrir. Sé þig á röltinu bráðlega, gangi þér vel að læra. kkv.
Salný (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 08:59
Vá hvað þetta eru æðislegar fréttir innilega til hamingju og gott að heyra að allt gengur vel. Bíddu afhent 1. feb, ég gleymdi alltaf að spyrja þig hvert þið væruð að flytja!!
Bið að heilsa og gangi þér vel
Díana Dögg Víglundsdóttir, 15.1.2008 kl. 09:05
Enn og aftur til lukku með bumbuna . Ekki slæmt að sleppa við að pakka niður...getur bara byrjað strax að raða inn í nýja húsið í huganum.
Smill (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 09:33
þetta er svo frábært! Knús:)
Jóhanna (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 14:37
Nú er eins gott fyrir mig að vera dugleg að fylgjast með ykkur úr því að þú ert búin að yfirgefa mig frá Baunalandi ;( Strax farin að hlakka til að hitta þig í mars, verð að mæta svo ég fái að sjá bumbuna....
Risaknús Hlín
Hlin (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 18:04
Til hamingju með bumbubúann, náði ekkert að hitta á þig í lotunni, frétti bara eftir á að það væri ólétta að ganga í E-hópnum Vonandi hitti ég ykkur eitthvað næst. EN enn og aftur til hamingju með allt saman, bumbuna, húsið og flutningana. Hafið það sem allra allra best. Þangað til næst
Hulda í eyjum
Hulda Birgis (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 18:19
Takk fyrir stelpur mínar
Úrsúla Manda , 15.1.2008 kl. 22:24
Frábært! Til lukku með þetta allt.
Guðmundur Rafnkell Gíslason, 16.1.2008 kl. 12:18
TIl hamingju elsku ÚRsúla og fylgifiskar. Yndislegar fréttir. 17 júlí er nú aldrei slæmur skohhh!
Hlakka til að fylgjast með.
Svanfríður (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 14:46
Til lukku með bumbubúann. Yndislegt!
SigrúnSveitó, 16.1.2008 kl. 15:37
Takk enn og aftur öllsömul
Úrsúla Manda , 16.1.2008 kl. 23:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.