1.3.2008 | 23:09
Trúið þið þessu?
Ég er orðin nettengd!! Ég þurfti ekki að grípa til þessara ráða sem Þórey ráðlagði mér, en trúið mér, ef hann Grétar hefði ekki hringt í mig í gær og tilkynnt mér að ég væri orðin tengd, þá hefði ég sennilega hringt í þá og farið að skæla. En máttur "ljóta" orðsins er greinilega mikill og hef ég ákveðið að nota það í neyð... svona þegar allt annað virðist útilokað.
Annars erum við skötuhjú ein í kvöld. Ingibjörg dvelur hjá ömmu sinni í góðu yfirlæti fram á morgun. Þær nöfnur fóru inn í hesthús að gefa hestunum brauð og pönnukökur. Það endaði reyndar með því að Ingibjörg fór á hestbak með einum hestamanninum. Var víst alveg í skýjunum Það verður gaman að hitta hana á morgun og heyra lýsingarnar.
Við fórum í íþróttaskólann í morgun. Ægilega gaman. Ingibjörg er reyndar svo lofthrædd að hún var nú ekki mikið að príla, svona fyrir utan hvað hún er varkár. En ætli hún verði ekki aðeins kaldari næsta laugardag. Hugsa það. Henni fannst samt þetta samt mikið sport og hljóp og gerði það sem henni þykir skemmtilegt. Var svo ekkert á því að fara heim. Eysteinn er með þessa tíma og þegar hann byrjaði í morgun að tala um hvað ætti að gera og svona, fékk ég algjört flashback og fannst ég vera 12 ára í leikfimi en hann kenndi mér einmitt leikfimi í nokkur ár. Ferlega fyndið.
Annars eru allir bara nokkuð hressir. Mér finnst svona fullmikill vetur búinn að vera núna. Loksins þegar mestur snjórinn var farinn og götur orðnar auðar þurfti að snjóa aftur. Og það er sko bara nokkuð mikill snjór í bænum. En það er ljúft að eiga bílskúr og geta farið í heitan bílinn á morgnanna, svo ég tali nú ekki um að sleppa við að skafa bílinn
Akkúrat ekkert í sjónvarpinu, svo ég er að hugsa um að rifja aðeins upp Nágranna í tölvunni. Langt síðan ég hef horft á þessar elskur. Góða nótt.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja
Athugasemdir
Velkomin til baka :)
Júlía Rós (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 15:43
Velkomin í netheima mín kæra.
Kannski að maður fari að sjá meira af þér, hér og þar vegna þessa...ég var farin að sakna þín allverulega.
Svanfríður (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 19:08
Takk fyrir stúlkur mínar
Úrsúla Manda , 2.3.2008 kl. 21:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.