30.3.2008 | 23:36
Letilíf
Hér var legið í rúminu til hádegis í dag. Þvílíkt sem það var ljúft. Ég reyndar vaknaði klukkan 8, og hélt þá hreinlega að ég væri að springa, þar sem ég hafði ekki vaknað til að pissa um nóttina!! Svona er þetta, er bara stanslaust á toilettinu. En ég var fljót upp í aftur og er komin á fullt skrið með Yrsu. Ætla að klára hana núna í kvöld. Heimir kom með appelsín og páskaegg upp í rúm um 10 leytið!! Sagði að hann mætti þetta alveg þar sem páskarnir fóru framhjá honum Það var líka frekar ljúft að liggja og lesa og eta sælgæti til hádegis.
Það er búið að snjóa þvílíkt mikið í dag. Ég fann alveg jólafiðringinn fara um mig. Þetta var svona stöðug snjókoma með risa flyksum. Ferlega fallegt. Mikið verður gaman næstu jól... en það er víst margt annað sem kemur á undan þeim
Ég þarf alveg að sitja á mér að kroppa ekki í hrúðrið á bólunum á Ingibjörgu. Reyndar er nú alveg heill hellingur farinn, en enn er eitthvað eftir. (Vá mikið af e-um!) Hún er ekkert að spá í þessu, það er bara ég sem er ekki að höndla þetta!
En jæja, ég ætla að fara upp í rúm... að lesa.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja
Athugasemdir
Kíki hér við annað slagið Úrsúla! Nauðsynlegir svona dagar
Auður (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 07:09
Bara að kíkja aðeins á ykkur. Rigning og skítaveður úti.
kv Tinna og Albert Loki
Tinna Vidarsd (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 15:22
Gaman að sjá ykkur hérna stelpur Tinna, skilaðu kveðju til Einars.
Úrsúla Manda , 31.3.2008 kl. 19:32
Gleðileg jól!!!
Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 01:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.