12.10.2008 | 00:09
Komin aftur
Jamm það er langt síðan síðast. Gott að taka sér smá pásu. Ætla ekki að tala um það sem er í ÖLLUM fréttum ALLTAF, ALLA daga. Nenni því ekki.
Í þessum skrifuðu orðum eru allir fjölskyldumeðlimir sofnaðir nema ég. Meira að segja kötturinn liggur upp við mig og andar djúpt. Ég sit hérna frammi með kertaljós og er að horfa á Sex in the City. Sunna lánaði mér allan pakkann en ég hef aldrei séð þetta allt, bara þátt og þátt. Er komin á seríu 2 og finnst þetta hin besta skemmtun. Júlía Rós sendi mér 20 ára afmælisútgáfu Opruh um daginn og það var ÆÐI! Grét nú úr mér augun á köflum. Oprah er mögnuð. Nú langar mig að sjá allar 24 seríurnar og Will & Grace.
Ég var í vettvangsnámi í síðustu viku. Mjög gaman, fer aftur í nóvember. Er enn og aftur búin að skipta um kjörsviðið. Ætla að taka almenna kennslu - miðstigið. Þar er komið inn á flest það sem kennt er, tveir áfangar í íslensku, tveir í stærðfræði *hóst*, náttúrufræði og samfélagsfræði. Held að þetta sé rétt ákvörðun hjá mér, ég get þá bara tekið meira í íslensku eða öðru ef mér líst svo á. Kvíði reyndar stærðfræðinni en ég tek á henni, redda mér hjálp ef ég þarf á því að halda.
Ætli það sé ekki best að skríða í bælið, lesa smá. Njótið sunnudagsins!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja
Athugasemdir
jiiiii, manni bregður hálfpartinn við að sjá þig hér eftir 12
Smilla, 12.10.2008 kl. 05:36
SIGURLAUG... 05:36!!!??? Afhverju í andsk... varstu vakandi þá?!
Úrsúla Manda , 12.10.2008 kl. 12:06
hehh*hóst*...var að skríða heim af djamminu
Smilla, 12.10.2008 kl. 13:02
Velkomin aftur :-)
Þóra Matthildur (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 15:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.