Færsluflokkur: Bloggar
5.10.2007 | 21:11
Heim á morgun
Við höfum það sko notalegt núna, sitjum fyrir framan sjónvarpið og horfum á tónleikana með Magna, drekkum bjór og etum sælgæti!! Gerist varla betra Ætlum á eftir að horfa á þátt númer 2 í nýjustu seríunni af Greys!! Hlakka til, æðislegir þættir. Svo er það auðvitað 3ji þátturinn af Næturvaktinni, á sennilega eftir að hlæja mikið
Kíkti á Heiðu mína í gær og kvaddi mannskapinn. Eyddi svo restinni af deginum og kvöldinu með Sigurlaugu. Voða gaman hjá okkur eins og alltaf. Við fórum í Smáralindina og fengum okkur svo að borða á Fridays. Ægilega fínt. Keypti mér regngalla. Reyndar ekki 66Norður (sorry Gunnar) en ægilega fínann samt. Ég ætti því að geta hjólað með Ingibjörgu í leikskólann án þess að tapa gleðinni vonandi verður rigning á mánudaginn.
HEIM á morgun!! Jii hvað ég er spennt að knúsa þau feðginin! Ætla sko að hafa Ingibjörgu uppí næstu nótt... bara notalegt. Er með mikinn farangur, það er víst ekkert nýtt *hóst*. Er ekki búin að vigta þetta, þori það ekki...
Jæja, ég kveð í bili úr Vogunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2007 | 23:16
Nóg að gera
Og ég er enn eina ferðina komin upp í rúm hérna "heima" í Vogunum... fínt að skrifa fréttir úr rúminu Mér líður alveg dásamlega hérna hjá þeim hjónum. Held reyndar að það sé einstaklega góður andi í húsinu, ég sef bara eins og steinn allar nætur og líður mjög vel.
Annars gengur allt vel og voða gaman í skólanum. það var ferlega skemmtilegt að hitta allar stelpurnar úr hópi E aftur. Ótrúlega góður hópur sem ég lenti í. Svo maður segi nú bara eins og fegurðardrottningarnar: Við erum allar rosalega góðar vinkonur
Gengur líka vel hjá feðginunum í Danmörku. Að vísu eru þau bæði lasin í dag, en Ingibjörg var öll að hressast síðast þegar ég talaði við þau. Heimir held ég, að sé bara lasinn af söknuði Honum finnst þetta bara alveg ferlegt að hafa mig ekki heima, en það styttist nú óðum í heimkomu mína.
Ég er nú búin að bralla ýmislegt síðustu daga. Á mánudeginum fór ég mat til Heiðu minnar og hafði það huggulegt með þeim. Gærdeginum eyddi ég svo með þeim systrum Júlíu Rós og Kristjönu. Alltaf jafn skemmtilegt. Við kíktum í búðir og fengum okkur svo að borða á Red Chilli. Já ótrúlegt en satt, það var ekki Ítalía! Gott að hvíla sig aðeins á henni. Í dag fór ég bara beint heim eftir skólann. Júlía eldaði voða góðan mat og við erum búin að hafa það notalegt fyrir framan sjónvarpið að borða Hraun og Kókosbollur! Ægilega gott!
Við vorum að horfa á fyrstu tvo þættina af Næturvaktinni. Ég hef aldrei séð þessa þætti, bara heyrt talað um þá. En það sem ég er ekki búin að hlæja! Finnst þeir alveg drepfyndnir þeir félagar þarna. Horfði líka á Tekinn og hélt ég myndi pissa á mig úr hlátri þegar þeir tóku Valtýr Björn í gegn!! Jeminn einasti... "Ertu að gráta litli karl?!" Og um að gera að vera svolítið viðkvæmur fyrir stærðinni... "Tittur!" Ó þetta var fyndið!
Finnst ekki gaman að hafa misst af Stebba og Eyfa heima í kirkjunni! Mikið hefði ég viljað sjá þá. Takk Sigga fyrir að hugsa til mín Já og svo er trúbadorhátíð heima um helgina. Hef nú ekki haft mikinn áhuga á henni hingað til, en núna er loksins eitthvað fyrir mig, Einar Ágúst og fleiri sem ég myndi vilja sjá!! Týbískt.
Jæja, ég ætla að fara að sofa. Er búin um hádegi á morgun og ætla þá að kíkja á Heiðu og eyða svo deginum með Sigurlaugu... sem b.t.w. á afmæli í dag!! Til lukku stelpa Við förum sjálfsagt í góðan verslunarleiðangur og borðum svo eitthvað gott. Hlakka til!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2007 | 12:39
Ísland - fagra Ísland
Ég ligg hér uppi í rúmi í Vogunum með tölvuna mína. það væsir sko ekki um mann hérna. Kveðjustund og flugferð gengu vel. Ingibjörg var svo dugleg, grét ekkert, bara knúsaði og kyssti mig nokkrum sinnum og vinkaði mér svo bless. Guði sé lof, veit ekki hvað ég hefði gert ef hún hefði látið öllum illum látum. (Jú sennilega hætt við!) Svo þetta auðveldaði kveðjustundina mikið. Ég talaði svo við hana í morgun og var hún bara hin hressasta. Heimir sagði að hún hefði verið að spyrja um mig, og segði svo: mamma úti Vonandi gengur þetta svona vel út vikuna.
Já kjúklingarétturinn stelpur. Hann er sko mjög einfaldur skal ég ykkur segja. Ég fékk þessa uppskrift í sumar hjá einni sem vinnur á sjúkrahúsinu. Ég hafði aldrei heyrt um þennan rétt, en allir aðrir virtust kannast við hann, þannig að kannski er þetta bara gamall réttur fyrir ykkur En hér er uppskriftin:
50g smjörlíki (ég set alltaf aðeins meira)
200g brúnn púðursykur
2dl apríkósumarmelaði
2dl barbeque sósa (venjuleg)
1 peli rjómi
Þetta er allt brætt saman í potti, leyfa þessu aðeins að malla svo að marmelaðið leysist vel upp. Nú svo er kjúklingurinn. Ég sker niður kjúklingabringur, léttsteiki þær á pönnu, set þær svo í eldfast mót og helli gumsinu yfir og inn í ofn í ca. 30-45 mín. Og þar sem ég elska ost, þá finnst mér æði að setja ost yfir þetta bara gott!! Svo er auðvitað líka hægt að rífa utan af heilum steiktum kjúkling. Mér finnst bringurnar bara svo rosalega góðar í þetta, og þær eru auðvitað nánast gefins í Danmörku.
Með þessu borðum við alltaf hrísgrjón og Avocado salat. Uppskriftin af því er:
1 avocado skorinn í bita
2 tómatar skornir í bita
Rauðlaukur eftir smekk
Safi úr hálfri sítrónu
Í lokin er svo settur fetaostur og smá af olíunni af honum, ásamt slettu af Balsamic olíu. þetta er alveg rosalega gott og ferskt salat og passar vel með þessum rétti. Bon Appetit
Læt þetta gott heita í bili. Skóli á morgun, reyndar ekki fyrr en klukkan 10:30, ljúft. Byrjar á kynningu á kjörsviðunum. Núna hinsvegar ætla ég að reyna að læra smá og leggja mig svo... maður hefur það sko ljúft á sunnudegi hér í sveitinni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.9.2007 | 15:51
Tilbúin
Má eiginlega segja að ég sé bara tilbúin til brottfarar. Eina sem er eftir er að pakka tölvunni niður. Og þar sem ég veit að þið eruð ægilega spennt að vita hvernig farangurinn er, þá er ég með innan við 20 kg!! Best að endurtaka þetta... INNAN VIÐ 20KG!! Mitt dót er bara hálf taskan og restin eru gjafir. Ég veit hinsvegar að ég verð með yfirvigt þegar ég kem tilbaka. Fiskur og hreindýr eru víst ekki mjög létt. En isss þetta reddast allt saman
Er auðvitað komin með í magann yfir að kveðja þau feðginin, en svoleiðis er það bara. Lítið hægt að gera í því annað enn að gráta
En jæja, ég ætla að fara að laga matinn. Ætla að gera góða kjúklingaréttinn með púðursykrinum og því, en við erum gjörsamlega með æði fyrir honum. Borðum öll á okkur gat (göt) af þessum mat.
Ég kveð í bili, og læt "heyra" í mér frá Íslandinu góða. Farvel!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.9.2007 | 21:07
Versla, versla...
Fór í Fields í dag. Var í H&M í 2 og hálfan klukkutíma, ægilega gaman Ég fór í þeim erindagjörðum að versla afmælisgjafir og annað sem ég tek með mér til Íslands, og að kaupa smotterí fyrir Júlíu Rós. Ég gekk klifjuð út úr Fields, aldrei þessu vant *hóst*. Ég ætlaði ekkert að kaupa á Ingibjörgu, aðeins að kíkja á útifatnað á hana, en gerði nú gott betur en það. Keypti náttkjól, tvennar buxur, þrenna boli, nærföt, inniskó og fleira í þeim dúr. Manni er bara ekki viðbjargandi þegar þarna inn er komið... það er bara svoleiðis og ekkert við því að gera En já ég keypti sem sagt snjógalla á dömuna sem mamma og pabbi gefa henni. Ægilega fínn galli. Vil jafnframt benda ykkur á það að ég valdi BRÚNAR buxur við úlpuna, en það voru líka til bleikar! Og já ef út í það er farið, að þá var líka til alveg bleik úlpa, en ég valdi þessa í staðinn!! Myndi sko aldeilis segja að ég væri að koma til í (úr) bleika litnum
Síðan ég kom út hef ég ekki dottið niður í neina danska þætti. Öðru hvoru hef ég reyndar horft á Önnu Phil en annars ekkert. En fyrir þremur vikum síðan fylgdist ég með fyrsta þættinum af Vild með dans... og þá er bara ekki aftur snúið. Ferlega skemmtilegir dansþættir þar sem eitt par dettur út í hverjum þætti. Við Ingibjörg fylgjumst með þessu afar spenntar og klöppum vel og lengi eftir hvert dansatriði Mitt uppáhaldspar er handboltastrákurinn og danskonan. Hann er bara eitthvað svo æðislegur!
Ég er að lesa bókina Aldingarðurinn eftir Ólaf Jóhann. Ég var búin að dæma hana glataða áður en ég byrjaði, þar sem þetta eru allt saman smásögur og ekkert tengdar. En annað kom á daginn. Finnst þessi bók alveg ferlega skemmtileg og frábært að maðurinn skuli geta skrifað svona margar góðar stuttar sögur. Ég mæli með henni. Í þeim skrifuðu orðum ætla ég að koma mér í rúmið að lesa.
Gullkorn dagsins:
Jörðin er allt og miklu meira en nóg ef mennirnir kynnu að lifa...
Hannes Pétursson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.9.2007 | 11:36
Mamman
Ég varð að setja þetta hérna, fékk þetta frá einni vinkonu minni. Algjör snilld
SKOÐANIR BARNA Á MÖMMUM
-Hvers vegna bjó Guð til mömmur?
Hún er sú eina sem veit hvar plásturinn er geymdur.
Aðallega til að þrífa húsið.
Til að hjálpa okkur að fæðast.
-Hvernig bjó Guð til mömmur?
Hann notaði súlu svona eins og er í okkur flestum.
Töfraefni og fullt af garni.
Guð bjó til mömmu alveg eins og mig bara með stærri hlutum.
Úr hverju eru mömmur búnar til?
Guð bjó til mömmur úr skýjum, englahári og öllu góðu í heiminum og pínu slæmu.
Það varð að byrja með rifbeini úr manninum og svo fullt af garni held ég.
-Af hverju gaf Guð þér þína mömmu en ekki einhverja aðra mömmu?
Við erum skyld!!
Guð vissi að henni líkaði miklu betur við mig en annarra manna mömmum.
-Hvernig var mamma þín þegar hún var lítil stelpa?
Mamma var alltaf mamma mín og ekkert annað bull!!!
Ég veit það ekki af því ég var ekki þar, en held hún hafi verið ansi stjórnsöm.
Þeir segja að hún hafi verið nokkuð þæg!
-Hvað þurfti mamma þín að vita um pabba þinn áður en þau giftust?
Eftirnafnið hans.
Hún þurfti að vita um fortíðina hans, ef hann var þjófur.
Eða hvort hann var fullur af bjór.
Hvort hann átti milljón!
Hvort hann sagði NEI við eiturlyfjum og JÁ við heimilisstörfum.
-Af hverju giftist mamma þín pabba þínum?
Pabbi býr til heimsins besta spaghettí og mamma borðar mikið!
Hún varð of gömul til að gera eitthvað annað við hann!
Amma segir að mamma hafi ekki hugsað ....
-Hver ræður heima hjá þér?
Mamma vill ekki ráða en pabbi gerir svo mikið bull og vitleysu.
Mamma, maður sér það þegar hún ætlar að gá hvort ég sé búin að taka til. Hún sér það sem ég faldi undir rúminu.
Ég held að það sé mamma en bara af því að hún hefur miklu meira að gera en pabbi.
-Hver er munurinn á mömmum og pöbbum?
Mamma vinnur í vinnunni og vinnur heima pabbi vinnur bara í vinnunni.
Mömmur kunna að tala við kennara án þess að hræða þá, og þú þarft að spyrja hana hvort þú megir sofa hjá vinum þínum...
-Hvað gerir mamma þegar hún á frí?
Mömmur fá ekki frí !!!
Hún segist þurfa að borga reikninga allan daginn.
-Hvað þarf mamma þín til að vera fullkomin?
Að innan er hún fullkomin að utan, ég held, kannski lýtaaðgerð.
Megrunarkúr.
Þú veist, hárið. Kannski lita það blátt.
-Ef þú ættir að breyta einhverju við mömmu þína hvað væri það?
Hún er búin að ákveða að herbergið mitt eigi að vera hreint. Ég mundi breyta því.
Ég mundi gera hana klárari. Þá mundi hún vita að það var systir mín sem gerði það en ekki ég.
Ég vildi óska að hún hefði ekki augu í hnakkanum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.9.2007 | 08:54
Rigning
Í gær var 25 stiga hiti og sól og blíða, það var alveg draumaveður! Í dag er hinsvegar rigning og 15 stiga hiti. Ég sem hélt að sumarið væri bara komið aftur. En það er reyndar búið að vera mjög ljúft veður í allt haust, og nú er bara að koma október. Já tíminn flýgur, sléttir 90 dagar til jóla
Heimir er ekki í skólanum í dag, svo hann hjólaði með Ingibjörgu á leikskólann. Sem betur fer, ég veit ekkert leiðinlegra en að hjóla í rigningu! Hata það eiginlega! Ég verð alveg vitlaus í skapinu, þoli ekki að vera öll rennandi blaut og svo skítkalt þegar maður kemur inn! Ég á líka engar regnbuxur, bara efra stykkið. Verð að kaupa mér almennilegan regngalla, fann engan í Fields um daginn, spurning hvort ég finni þetta ekki bara heima á Íslandi.
Já aðeins 4 dagar í brottför. Mig hlakkar til en kvíðir líka fyrir... eins og alltaf! það verður skrítið að skilja feðginin eftir í öðru landi!
Jæja, ég ætla að stökkva í Super Brugsen og versla aðeins. það var svaka tilboð á sprittkertum og svo alveg risastór, geggjuð lukt á tilboði líka. Sé hana alveg fyrir mér hérna úti á svölum, svo ég hugsa að ég verði bara að kaupa hana Svo er bara stefnan tekin á lærdóminn, þarf að gera eitthvað viðbjóðslega leiðinlegt verkefni í efnisleit. Veit eiginlega ekki almennilega hvað það er sem ég á gera, en ég kemst að því.
Hér er Ingibjörg í rólegheitum í morgun, undir teppi með selinn sinn og alveg dáleidd að horfa á Disney show! Gerist bara ekki betra
Gullkorn dagsins:
Takið kærleikann burt - og heimur okkar verður gröf.
Róbert Browning
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.9.2007 | 22:18
Ísland
Já eftir viku verð ég komin til Íslands. Fer á laugardaginn og kem svo út aftur viku seinna. Er að koma í staðlotu nr. 2 á þessari önn en staðlotan er frá 1.-5.okt. Ég mun verða í góðu yfirlæti í Vogunum hjá Júlíu Rós og Hermanni. Hef hugsað mér að vera ekki eins og útspýtt hundskinn um allar trissur eins og ég var í síðustu ferð. Ætla að hitta Heiðu mín, eyða einum degi með Sigurlaugu og segja það svo bara gott. Jú svo mun auðvitað verða huggulegt kvöld með þeim systrum Júlíu og Kristjönu... vonandi allavega.
Það er nóg að gera í skólanum. Stanslaus verkefnaskil og það verður nóg núna næstu viku, fyrir staðlotuna. Gleymdi reyndar að segja ykkur, að ég skilaði fyrsta verkefninu í KHÍ um daginn og fékk 9,5!! Hoppaði hæð mína, því ég var svo viss um að ég fengi 6 og þyrfti að gera það aftur. Held ég geti alveg þakkað honum Smára Geirssyni fyrir alla þá kennslu sem hann kenndi mér í sambandi við ritgerðir og ritgerðasmíð. Smári er auðvitað einn besti kennari sem fyrirfinnst. Alveg frábær... "Er þetta sæmilega skýrt?" Nú er ég á fullu að gera Hugarkort sem ég á að skila á morgun. Þetta geri ég í gegnum forrit sem heitir MindManager. Alveg hrikalega skemmtilegt. Þetta gengur hinsvegar frekar hægt hjá mér því ég gjörsamlega gleymi mér í allskonar fítusum og er stanslaust að breyta útlitinu! En ég hef tíma til miðnættis á morgun.
Annars er ég eiginlega búin að vera að hugsa um jólakort síðan eftir síðustu færslu. Hlakka mikið til að fara að skrifa þau. Sjálfsagt verður nóg að gera í skólanum og því öllu saman, en fyrr frysi í víti en að ég myndi klikka á jólakortum! Elska jólakort. Er búin að vera að velta því fyrir mér undanfarin 2 ár allavega, hvort ég gæti beðið með að opna jólakortin, semsagt ekki að rífa þau upp um leið og þau kom í hús. Er farin að velta þessu aftur fyrir mér. Hvort ég geti það þessi jól... held samt ekki.
Það er lyfta hér í húsinu. Guði sé lof, þar sem við búum uppi á næstefstu hæð. Ég er svo oft að hugsa, þar sem ég stend og bíð eftir lyftunni, hvað ég myndi gera ef það skyldi nú hanga manneskja niður úr loftinu þegar lyftudyrnar opnast! Merkilegt hvað manni dettur oft í hug. Ég hlýt að hafa séð þetta einhvern tímann í bíómynd. þetta truflar mig... þegar ég vann í Egilsbúð hér í denn, þá þorði ég aldrei að fara út með ruslið. Var svo viss um að það væri eitthvað ofan í gámnum, eins og rotta eða lík!! Yfirleitt fékk ég nú Sigurjón Gísla til að fara með ruslið út fyrir mig, en þegar hann var farinn að neita, reyndi ég við fleiri. Út með ruslið fór ég ekki! Það var líka ekkert grín að vera að vinna með Bigga eftir að hann fékk nasaþef af þessari hræðslu minni, honum hefði verið trúandi til alls.
Ingibjörg er lasin. Á fimmtudeginum var ég einmitt að hugsa um að nú væri hún búin að vera í þrjár vikur á leikskólanum og ekkert orðið lasin, svona fyrir utan kvef. Svo kom það auðvitað. Greyið, hún var hundlasin í gær, með bullandi hita en mun hressari í dag. Vonandi verður allt í góðu á morgun, svo hún komist á leikskólann á mánudaginn.
Guðlaug mín, til hamingju með flutninginn
Gullkorn dagsins:
Grimmdin er ævinlega merki um ástríður og ótaminn hug. Hún er merki þekkingarskorts og manndómsleysis.
Pálmi Hannesson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.9.2007 | 19:55
Jólin og fleira
Við familyan skelltum okkur í Tivolið á laugardeginum. Tókum Hrafnhildi og fjölskyldu með okkur. Algjör snilld að vera með svona gullkort, þá getur maður tekið 5 manns með sér! þið hóið bara ef þið viljið fara frítt í Tivolí Ég fór með Ingibjörgu í hringekjuna í fyrsta sinn, veit ekki hvor skemmti sér betur, ég eða hún.
Vil benda ykkur á jólaniðurtalninguna! Aðeins 98 dagar til stefnu! Já hugsið ykkur... mikið hlakka ég nú til að koma heim um jólin. Nú er enn meiri spenningur í mér en vanalega fyrir jólin (og er hann nú alltaf MJÖG mikill) þar sem við vorum hérna úti síðustu jól. Hlakka til allra hefðanna heima. Hlakka líka OFUR mikið til að fylgjast með Ingibjörgu í pökkunum og þegar hún fer að fá í skóinn! Jiii hvað það verður gaman Svo ég tali nú ekki um að fara að skreyta, setja upp seríur, skrifa jólakortin og pakka inn pökkunum!! Jeminn einasti! Svo er ég líka búin að ákveða það að jólasveinninn komi með pakka til Ingibjargar á aðfangadag, það verður bara gaman! Eitthvað fór ég að tala um jólaskrautið við Heimi um daginn, og þá sagði hann þessa gullvægu setningu: "Já nú skreytum við ekkert hérna þetta árið!" Hann hefði alveg eins getað lamið mig, ekki hefði ég orðið meira gapandi. Yeah right, eins og ég skreyti ekki þó ég verði ekki hér akkúrat yfir jólin! Ég held það nú! Tilkynnti honum það líka að ég yrði örugglega með þeim fyrstu sem færi með reglustrikuna úti í gluggana upp úr miðjum nóvember! Skulum bara hafa það á hreinu!
Annars sagði Ingibjörg sitt fyrsta danska orð í dag!! Svona allavega það sem við vitum og skiljum Pabbi hennar sótti hana af leikskólanum í dag, hún kom heim og þá var agalega mikið að gera hjá henni að segja mér hvað hún hafði verið að gera yfir daginn. Ég sagði við hana að svo færi hún aftur á morgun að leika við krakkana og allt það. Hún alveg með á nótunum, kinkaði kolli og sagði "já, já, bæbæ i morgen"! Hún var sem sagt að segja það sem fóstrurnar segja alltaf þegar hún fer, eða: "vi ses i morgen." Ég sagði það einmitt til að prófa hana, hvort það væri virkilega þetta sem hún var að segja, og það passaði. Hún sagði alltaf "já i morgen!" Veit svei mér þá ekki hvað mér finnst um þetta Blessað barnið fer bráðum að tala dönsku...
Mjög fínt í þrifunum á föstudaginn Fer sennilega aftur á morgun og svo spilum við þetta bara af fingrum fram. Verð sennilega 1-2 svar í viku. Kom Heimi í vinnu hjá þeim líka, hann fer í ljósamálin á heimilinu. Aldeilis fínt.
Ein í lokin af okkur mæðgum í Tivolí.
Gullkorn dagsins:
Sumt fólk kennir áhyggjum sínum að synda í stað þess að drekkja þeim.
Mark Twain
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.9.2007 | 20:39
Fyndin :)
Mikið svakalega get ég nú verið fyndin, samanber síðustu færslu Sé ykkur alveg fyrir mér taka andköf yfir giftingunni! Er búin að hlæja mig máttlausa yfir commentunum. En nei, ég held ég geti fullvissað ykkur um það að ég á ekki eftir að gifta mig svona "suprise". það er ekki alveg ég. Ég vil brúðkaup heima í Neskaupstað, með minn prest og svo veislu. Hlakka mikið til! Við erum samt ekki að fara að gifta okkur á næsta ári... kannski þarnæsta eða bara árið 2010, það fyndist mér ofur flott. En nóg um giftingar
Á morgun er ég að fara í nýju vinnuna mína. Ég er að fara að þrífa hjá einum merkasta norðfirðingi sögunnar eða það er mín skoðun. Verð hjá þeim einu sinni í viku eða oftar, bara eftir behag.
Besti dagur Ingibjargar í leikskólanum var í dag. Allt að koma, allt að koma.
Hún Hrönn bekkjarsystir mín og vinkona, á afmæli í dag. 30 ára stúlkan! Innilegar hamingjuóskir með daginn, elsku Hrönnsa
Gullkorn dagsins:
Hvað getur þú átt fyrst lífið sjálft er lán?
Örnólfur Överland
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja