11.7.2008 | 23:32
Góða helgi
Jæja þá er Ingibjörg komin í fimm vikna sumarfrí. Hún byrjaði sumarfríið sitt á því að gista hjá ömmu sinni, ekki slæm byrjun það.
En við erum bara hress. Allt kom vel út úr skoðuninni en það var ekki hreyft við belgnum. Það verður gert á miðvikudaginn ef ég verð ekki búin þá. En auðvitað verð ég búin
Annars ætlaði ég bara að segja góða helgi til ykkar allra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.7.2008 | 11:41
Today is the day!
Eða ekki! En allavega, það er kominn 10. júlí sem er settur dagur og ég því komin 40 vikur á leið. Það er nú allt með kyrrum kjörum og virðist barnið vera afar sátt við sig þarna inni. Fer í skoðun á morgun og þá erum við að spá í að hreyfa við belgnum, ath hvort það hafi eitthvað að segja. Það var nú reyndar gert tvisvar ef ekki þrisvar þegar ég var ófrísk af Ingibjörgu og ekkert gerðist. En nú set ég stefnuna á laugardaginn en þá á amma afmæli Annars er ég nú alveg ótrúlega róleg yfir þessu, það er einna helst Heimir sem er eitthvað óþolinmóður - svoleiðis var það líka síðast, ég alveg pollróleg á 42. viku en hann alveg að tapa gleðinni
Ég sé fjallið! Já þið vitið hvað það þýðir - það er ekki þoka!! Ekki samt að það sé nein blíða, en guð hvað það munar þegar þokan liggur ekki alveg við sjóinn og maður sér ekki neitt. Er búin að hengja út þvott og ætla ég að vona að hann hangi þurr í dag.
Er að lesa Rimlar hugans. Finnst hún svolítið skrítin en ég ætla að klára hana, er hálfnuð. Mér finnst hún góð, en þetta er í svona bréfastíl og hún er sérstök. En svo er ég mikið að spá í það hvort hún sé sönn? Sennilega bæði bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.7.2008 | 23:09
Helgin
Aldeilis búin að vera fín helgi hjá okkur. Ýmislegt sem við náðum að klára, Heimir reif t.d. upp hellurnar fyrir neðan hús og tók allan gróður og lagði þær svo aftur og ég náði að gera ýmislegt sem ég var komin með á miða. Nú er kominn nýr miði sem ég dunda mér við í vikunni. Það sem stendur upp úr er heimsókn sem við fengum í gær, en Sigurlaug vinkona og fjölskylda komu til okkar. Hún hætti sér því enn og aftur í gegnum Oddskarðsgöngin til að hitta mig Nota bene, henni finnst þau hræðileg! (Sem þau auðvitað eru). Já það var voða gaman að hitta þau og áttum við saman góða stund. Aldrei þessu vant skein sólin hér í gær, ásamt smá þoku reyndar. En í dag er búið að vera þoka svo ekki hefur sést í fjöllin, takk fyrir pent!
Eins og ég hef áður talað um hef ég haft áhyggjur af því að Ingibjörg vill bara gera nr. 2 í bleiu. Nú hefur hinsvegar orðið breyting á Ég ákvað að bjóða henni koppinn þar sem hún hefur harðneitað að gera þetta í klósettið, og viti menn hún tók því Það virðist því ætla að rætast það sem ég hafði að markmiði, að hún yrði hætt með bleiu áður en annað barnið kæmi! Íhhaaa - bara gleði hér á bæ Nú þarf ég bara að passa að hún festist ekki á koppnum næsta árið, skelli henni á klósettið von bráðar!
Annars er komið að kvöldi 6. júli svo ég næ Salný Nú stefni ég á þriðjudaginn, 08.07.08 - finnst það bara flott (efa þó að það verði, en hvað veit maður). Síðasta vikan hjá Ingibjörgu í leikskólanum fyrir sumarfrí en hún byrjar aftur daginn eftir afmælið sitt, eða þann 19. ágúst.
Ætla nú upp í rúm að klára Steinsmiðinn. Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.7.2008 | 22:32
39 vikur
Og ég er enn ólétt ekki svosem að ég hafi búist við einhverju öðru, ég er nú bara róleg. Er mjög sátt við að þetta komi í næstu viku, á settum tíma. Ég held áfram að hafa það gott og stautast svo í hinu og þessu inn á milli. Var einmitt að gera lista yfir það sem ég vil vera búin að gera áður en að þessu kemur.
Fartölvan mín sem við keyptum í DK í haust er farin í viðgerð. Ég er ekki kát! Sit núna með gamla garminn og pirra mig endalaust á þessu. Skjárinn er eitthvað bilaður og núna undir það síðasta kom ekki neitt, tölvan kveikti á sér en skjárinn bara svartur. Arghh. Vona að þetta taki ekki rosalega langan tíma. Verst að ég var búin að sækja mér 3ju seríuna í Desperate housewifes sem ég á eftir að sjá og nú er hún bara föst þarna inni
Jæja ætla að hætta að pirra mig á þessu, ekki gott að fara svekkt í rúmið! Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.7.2008 | 22:43
1. júlí...
- en þegar ég lít út um gluggann gæti alveg eins verið 1. október. Þvílíkt veður!! Það mígrignir, ógeðslegt rok, skítakuldi og hreinlega myrkur úti. Er alveg komin með leið á þessu sko. En mér var sagt að það ætti að vera fínt um helgina, er ekki að trúa því núna í augnablikinu.
En við mamma fórum í héraðið í dag. Gekk vel með köttinn, fannst nú samt frekar óhugnalegt þegar örmerkingunni var sprautað í hnakkadrambið á honum. En hann fann nú ekkert fyrir þessu, kipptist ekki einu sinni til. Eins gott að Heimir fór ekki með hann, það hefði sjálfsagt liðið yfir hann - án gríns! Þetta var engin butterfly nál, neinei bara eins og prjónn númer 6. Ojj! Annars þræddum við búðirnar á Eg. og fengum okkur að borða. Hrikalega góðar pizzurnar í KHB sjoppunni.
Hulda nágrannakona úr Gauksmýrinni kom færandi hendi áðan. Fjórir kleinupokar takk fyrir!! Já það er gott að eiga góða granna Skulum hafa það á hreinu að hún gerir bestu kleinur í heimi! Er búin með hálfan poka og uppsker auðvitað bara brjóstsviða. En mér er alveg sama, hann er vel þess virði núna. Allar birgðirnar komnar í frysti svo nú á ég alltaf glænýjar kleinur þegar ég vil, jummí!
Best að fá sér eins og eina Rennie og fara svo í rúmið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.6.2008 | 23:05
Hvíld
Ég svaf fram að hádegi í dag (bara að láta ykkur vita ) eftir að feðginin voru farin í morgun, frekar ljúft. Drattaðist þá á fætur og fór í skoðun. Allt kom vel út og er barnið búið að skorða sig mikið var ég glöð.
Fór á bókasafnið með Elmu í dag. Fyrsta skiptið sem ég kem á nýja bókasafnið sem er rosalega flott! Endaði á að taka 8 bækur, en nú er komið sumarfrí á safninu. Ég fékk Rimlar hugans en hinar tvær sem ég er svo spennt fyrir voru ekki inni. Les þær seinna.
Við horfðum á myndina P.S. I love you, get lítið annað sagt en að ég hafi gjörsamlega grátið úr mér augun og þakkaði Guði fyrir að Heimir var heima. Stundi upp í miðjum ekkasogunum að ég væri ekki að höndla þessa mynd og bað hann að sækja fyrir mig heila klósettrúllu. Ég var bara miður mín. Það er langt síðan ég hef grátið svona rosaleg yfir mynd eða bók, svei mér þá - spurning hvort það hafi nokkuð verið síðan ég horfði á Titanic í fyrsta skipti (ekki það að ég græt alltaf þegar ég horfi á hana) en þá var ég með ekka í langan tíma eftir að myndin var búin. Svakalegt!
Við mamma erum að fara upp í Egilsstaði á morgun. Ég er að fara með köttinn til dýralæknis. Nú á að örmerkja hann og ormahreinsa. Ég ætlaði auðvitað að láta gelda hann í leiðinni, en hann verður ekki geldur fyrr en í haust. Læknirinn sagðist ekki gelda ketti fyrr en um 8 mánaða aldur, hann verður því bara fjörugur þangað til
Er farin upp í rúm að lesa - góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.6.2008 | 22:19
Bananabrauð
Við hjúin erum bara tvö hér í kotinu, Ingibjörg er hjá ömmu sinni og afa. Ætlum nú að fara að horfa á myndina P.S. I love you, sem þýðir að ég er að fara að pína Heimi til þess. Ég las bókina þegar ég var ólétt af Ingibjörgu og ætla ekki að segja ykkur hvað ég grét rosalega yfir henni. Vona að myndin sé líka góð.
Gerðum heilan helling í dag og var vaggan meðal annars sett saman. Ég reif allt af rúminu og þvoði meira að segja pífuna, undirlakið og allt sem hægt var að þvo. Hreiðurgerð... I know. Á morgun ætlum við að taka bílsskúrinn í gegn, en ég er búin að vera að bera dót þangað sem var á háaloftinu hjá mömmu og pabba. Ýmislegt fyndið sem ég er búin að finna og ætla að halda í. Er alveg hrikaleg í að henda svona, þ. e. a. s. ég get engu hent! Gæti hreinlega dáið drottni mínum þegar ég er að skoða gamlar skólamöppur, allar útkrotaðar í I love þennan og I love hinn Bara gaman. Heimi finnst ég hinsvegar frekar hallærisleg
Ég bakaði bananabrauð í dag. Fékk uppskriftina á síðunni hennar Sigrúnar. Og þar sem ég er ekki mikið fyrir að vera að baka bollur, brauð eða annað svoleiðis þá get ég lofað ykkur að þetta er einföld uppskrift. Skelli henni hérna inn fyrir ykkur:
Bananabrauð.
1 bolli sykur. 2 bollar hveiti. 1 tsk lyftiduft. 1 tsk natron. 2 bananar.
Þurrefnunum blandað saman og bananarnir stappaðir saman. Þeir svo settir saman við þurrefnin og hnoðað saman þangað til þetta er orðin bolla. Bakað við 180 gráður í 1 klst.
Svakalega gott og svakalega einfalt!
Ætla að fara að horfa og prjóna.
Bloggar | Breytt 29.6.2008 kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.6.2008 | 22:54
38 vikur
Já nákvæmlega í dag og ég er ekki enn farin á fæðingardeildina... OG stelpur, ég náði sjæningunni Reyndar held ég að ég sé ekkert að fara að eiga strax, og ég er eiginlega að vona að ég eigi ekki fyrr en eftir 6. júlí því þá er Salný komin úr fríi. Þannig að allar sléttar tölur eftir 6. til og með 18. eru í fínu lagi! Tek ekki þátt í að ganga með lengra en til 18. júlí, enda væri ég þá komin 8 daga framyfir settan dag. Þá vitið þið það. Ingibjörg hlýddi ekki fyrirmælum mínum árið 2005, en ég veit að þetta barn hlýðir mér, er alveg með það á hreinu En annars finnst mér magnað að hugsa til þess að eftir mánuð verð ég orðin 2ja barna móðir.
Elma koma í fyrradag og færði mér Steinsmiðinn eftir Camillu Lackberg. Ég lagði því Jaðiaugað á hilluna í bili, ég beið nefnilega spennt eftir þessari og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Mjög góð bók. Hinar tvær eftir hana, Ísprinsessan og Predikarinn eru líka alveg frábærar.
Í gær var síðasti dagurinn minn í vinnunni. Alveg er það nú ljúft. Er búin að hafa það svooo gott í dag og á morgun er ég að hugsa um að gera akkúrat ekki neitt!! Liggja í rúminu og lesa, horfa á tv og hafa það mjöööög gott
Vona að þið hafið það líka gott.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.6.2008 | 23:02
Betra er seint en aldrei =)
Jahérna hér, ég er bara ekki alveg að nenna þessu núna. Mikil bloggleiði að hrjá mig, kannski kemur andinn yfir mig ef ég byrja
Nú er ég að detta inn í 38. vikuna, vonandi eru bara 2 vikur eftir - EKKI fjórar. Var í skoðun í dag og kom allt vel út. Blóðþrýstingurinn fínn, kílófjöldinn á mér er enn innan eðlilegra marka og barnið er búið að lausskorða sig. Svo ég er bara kát Ég á eftir að vinna á morgun og næsta dag og þá er ég hætt! Hlakka mikið til, er svona aðeins farin að þreytast þó ég sé alveg hress.
Er tilbúin með ýmislegt fyrir komu barnsins. Vaggan kom í hús í dag, búin að kaupa fyrsta bleiupakkann, búin að þvo taubleiur og föt og svona hitt og þetta. Er núna að fara yfir leikföng og ungbarnadót til að hafa tilbúið í kassa. Sjálf er ég búin að fara til tannlæknis og fer í allsherjar yfirhollingu á fimmtudaginn til Rósu Daggar. Þá held ég að ég sé nokkurn veginn tilbúin í slaginn
Er búin að lesa bókina Þúsund bjartar sólir. Mæli með henni. Hún er eiginlega bara alveg rosaleg. Get þó ekki gert upp á milli hennar og Flugdrekahlauparans. Þó þær séu líkar þá eru þær ólíkar. Hægt að gráta yfir þeim báðum. Elma lánaði mér svo Jaðiaugað og er ég að byrja á henni. Verð að redda mér bókunum Áður en ég dey, Kona fer til læknis og Rimlar hugans. Látið mig vita ef þið eigið þær.
Læt þetta gott heita í bili. Ætla upp í rúm að lesa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
14.6.2008 | 23:32
Dagur að kveldi kominn
Aldeilis búinn að vera góður dagur í dag. Takk fyrir allar kveðjurnar hvort sem þær birtust í formi smsa, símtala eða hér á blogginu, takk fyrir Ég er þreytt en afar ánægð eftir daginn.
Ætla ekki að gera neitt upp í bústað bara prjóna, lesa, borða og sofa! Mikið ætla ég að hafa það gott.
Hér kemur ein af okkur mæðgum þar sem við biðum eftir gestunum. Hafið það gott á þjóðhátíðardaginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja