7.12.2007 | 21:44
Eitt búið
Jæja, fyrsta prófið var í morgun og gekk það vel. Næsta próf er á fimmtudaginn og er ég strax komin með í magann yfir því. Þroska- og námssálarfræði heitir það, stórt fag og hryllilega mikið efni, samt ekki leiðinlegt, bara MIKIÐ. Nú er bara að skipuleggja tímann vel fyrir prófið. Enn og aftur segi ég að ef ég fell í því prófi þá tek ég það aftur upp í ágúst. Himin og jörð ferst ekki, og ég mun alveg geta haldið gleðileg jól
Við Heimir fórum í Fiskitorfuna í vikunni. Náðum að klára allar jólagjafirnar! Mikið var það nú gott. Ferlega gaman að versla þarna. H&M búðin er t.d. alveg hjúmongus og miklu meira úrval þarna heldur í þeim búðum sem ég er vön. Ég ætla reyndar að fara eins og eina ferð eða svo, áður en við förum heim. Kaupa jóla- og afmælisgjöf handa Heimi og kíkja á fatnað fyrir SJÁLFA MIG, svo ég fari ekki í jólaköttinn! Eitt er víst að feðginin fara ekki í köttinn
Ingibjörg var svo heppin að hún var valin 1 af 4 börnum af deildinni sinni til að fara í jólatívolí í gær. Þau fóru í Nisselandið þar. Það var víst ægilega gaman og var hún sú eina sem fékkst til að sitja hjá jólasveininum Eftir tívolíið fóru þau svo út að borða á McDonalds. Frábært alveg hreint.
En jæja, það er komin helgi enn eina ferðina. Styttist sko í að við förum heim. Jii hvað það verður ljúft. Við hjúin erum orðin all svaðaleg um hárið!! Ég á tíma 20. des og Heimir 21. Guð hvað ég hlakka til! Það eru að verða komnir FJÓRIR mánuðir síðan síðast... ojjojj Heimir er kominn með það mikið hár að flaksar um í vindinum Haldiði að það sé ástand hérna!?!
En góða helgi öllsömul. Lærdómur og jólatívoli á dagskrá þessa helgina.
Gullkorn dagsins:
Vitringur hefur sagt mér að lífið sé aðeins daggardropi á lótusblómi.
Tagore
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 812
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Bloggarar
- Auður
- Baddý hjúkka
- Elsa Sæný
- Frú Jóhanna
- Hrönnsa
- Olla Noregsbaun
- Stefán hversdags
- Steinunn Þóra
- Svanfríður valkyrja
Athugasemdir
eru engir klipparar í Köben?? Það var nóg af slíku í Græsted...
SigrúnSveitó, 8.12.2007 kl. 16:01
Einhvern vegin grunar mig að Úrsúla Manda fari sko ekki til hvers sem er í klippingu og bíði þess vegna alveg róleg í 4 mánuði
Gaman fyrir Ingibjörgu að fara í svona ferð með leikskólanum...manni finnst þau orðin svo stór þegar kemur að svona vettvangsferðum hjá þeim.
Smill (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 16:11
Það er erfitt að finna nýja hárgreiðslukonu,það er bara þannig svo ég skil ykkur vel.
Hér er verið að setja útiljósin upp í 15 stiga gaddi og Bert er loppinn á höndunum en þrátt fyrir að jólin komi án ljósa þá er bara fallegra að hafa þau og því veit ég að þú ert sammála:)
Ljúfar stundir.
Svanfríður (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 16:18
Góður Sigrún jújú ég meira að segja hef farið 3-svar held ég til þeirra á Zenso, en mig langar miklu meira að fara heima. Fer alltaf ánægðust út þaðan.
Flott hjá ykkur Svanfríður, mér finnst þið nú samt svolítið sein í því
Úrsúla Manda , 8.12.2007 kl. 18:57
Gangi þér vel í prófunum Úrsula og að pakka niður til að flytja heim aftur. Bið að heilsa öllum og skemmtið ykkur vel um jólin á Íslandi.
kveðja frá London
Þórunn Guðrún Einarsdóttir (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 20:54
Takk fyrir Þórunn mín. Hafðu það sömuleiðis gott um jólin
Úrsúla Manda , 10.12.2007 kl. 20:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.