Leita í fréttum mbl.is

Ef þú ert kennari...

Þetta fékk ég sent frá einni sem er með mér í skólanum. Verð að deila þessu með ykkur því mér finnst þetta hryllilega fyndið!! LoL Ég meina, sjái þið þetta fyrir ykkur ef maður myndi framkvæma eitthvað af þessu? Grin Jesús góður!

-Talaðu alltaf lægra og lægra en svo í lokin, bentu á einn nemandann og öskraðu : "HVAÐ VAR ÉG AÐ SEGJA!!!??"

-Kenndu með fingrabrúðum

-Veldu af handahófi einhvern nemanda, spurðu svo ýmsar spurningar og taktu tíman meðan hann svarar... fussaðu svo og sveiaðu þegar hann svarar

-Segðu nemendunum að kalla þig "Ljómalind" eða "Pétur Pan"

-Stoppaðu í miðri kennslu allt í einu, grettu þig og spurðu nemendurna hvort þú sért með feitann rass

-Vertu með speglagleraugu og talaðu bara tyrknesku... láttu sem þú heyrir ekki í nemendum

-Byrjaðu kennsluna á að syngja og dansa "Sex Machine" eftir James Brown

-Leggðu nemendum fyrir það heimaverkefni að lesa frá Jóhannesi til Njar
ðar í símaskránni fyrir næsta tíma... og taktu fram að það verði próf

-Láttu alltaf tvo nemendur dreifa rósarblöðum á undan þér þegar þú labbar um stofuna

-Biddu nemanda aðeins um aðstoð upp við töflu... láttu þá skrifa undir samning meðan þú græjar á þig stálbrynju og stingur slípirokknum í samband.

-Byrjaðu kennsluna á því að brjóta tappann af vodkaflösku og öskra: "TÍMINN ER BÚINN, ÞEGAR FLASKAN ER BÚIN!"

-Láttu eins og kennslustofan sé full af vatni og syntu um allt!

-Urraðu á nemendurna og kallaðu þá alltaf "háseta"

-Komdu með lítinn hvolp í tíma... alltaf þegar einhver spyr þig spurningar, þá ferð þú og spyrð hvolpinn

 -Vertu í bleikum kjól, með englavængjum og biddu alla að kalla þig "Krúselíus!"

 -Hnerraðu framan í nemendurna

-Komdu hlaupandi inní kennslustofuna, froðufellandi og öskraðu ! "ERU ÞIÐ Í STUÐI!!!???? ÉG HEYRI EKKI Í YKKUR!!! ERUÐI Í STUÐI!!??!??!

 Annars er bara mígandi rigning hér í dag. Það er þá hægt að bóka það að Ingibjörg fari ekkert út í dag!! Meiri vitleysan! Ég er að reyna að koma mér í lærdómsgírinn og er að bíða eftir að stytti upp til að skjótast út í búð.

Hafið það gott í dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér er jólasnjór og SD var úti í morgun....lengi! Svooo notó að geta kíkt út um gluggann á hann

Smill (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 12:38

2 identicon

Djöfull er þetta fyndið. Er búin að vera í kasti hérna. Þá aðallega við tilhugsunina við það ef Draupnir léti svona við sína nemendur í æfingakennslunni í austurbæjarskóla ;) Sé þetta alveg fyrir mér. Algjörlega húmor að mínu skapi.

Þoka (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 15:50

3 identicon

Ég verð að viðurkenna að mér fannst þetta ekkert fyndið fyrr en ég fór að ímynda mér Draupni að gera þetta.

Steinunn Þóra (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Úrsúla Manda
Úrsúla Manda

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 698

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband