Leita í fréttum mbl.is

ÆÐI! :)

Nú sit ég hér með nýju tölvuna mína í fanginu... bara flott!! Hún kom semsagt í dag. Ægilega ánægð með litinn á henni. Hér sjáið þNóvember 006ið hana. Það fylgdi líka svona hulsa með henni, en mig langaði einmitt svo í svoleiðis. Heimir er búinn að setja allt í hana sem á að vera. Ég finn engan mun á skjástærðinni, bara alls engan, en það er svolítið skrítið að hafa allar skipanir og allt á dönsku. Það venst. Og svo er hún svo létt! Takkaborðið er silfrað... geðveikt!! Cool Nóvember 009

Næsta föstudagskvöld er úrslitakvöldið í Vild med dans! Eftir standa mín uppáhalds pör, Vicki og Steen, Robert og Marianne. Mig langar eiginlega að seinna parið vinni, þau eru svo æðisleg, en jafnfram eiga hin það fyllilega skilið. Finnst þetta svolítið erfitt. En við erum að tala um að spenningurinn í mér fyrir þessu er bara svipaður og fyrir Idolið heima! Enda er þetta ferlega skemmtilegt.

Nú eru mamma og pabbi að spóka sig um á Jamaica. Þau eru alsæl þarna, 30 stiga hiti og algjör paradís. Væri alveg til í að vera þarna lika svei mér þá! En já talandi um veður, það snjóaði í ca. 10 mínútur hér í gær. Kom semsagt smá föl og var hún horfin stuttu síðar... en samt fyrsti snjórinn Smile Verður gaman að vita hvenær alvöru snjórinn kemur.

Jæja ég ætla í bælið, góða nótt öllsömul.

Gullkorn dagsins:

Dagurinn í dag er morgundagurinn sem þig dreymdi um í gær.

Kínverkur málsháttur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með nýju vélina. Er að deyja úr öfund sko við að lesa þetta ;) Gott að þú varðst ekki fyrir vonbrigðum.

Þoka (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 16:22

2 identicon

Hún er mjög flott en ég verð að viðurkenna að ég hafði ákveðnar efasemdir um litinn til að byrja með - og áður en ég sá myndina.

Steinunn Þóra (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 17:27

3 Smámynd: Úrsúla Manda

Já hún er sko alveg að gera sig!! Er alveg í skýjunum.

Steinunn ég hugsaði það sama, var eitthvað efins með rauða litinn en svo er hún bara ferlega flott!

Úrsúla Manda , 13.11.2007 kl. 18:53

4 identicon

Annars er þetta æðilegur borðdúkur og hann fer tölvunni rosalega vel. Eða kannski er það öfugt.

Steinunn Þóra (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Úrsúla Manda
Úrsúla Manda

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 707

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband