Leita í fréttum mbl.is

Vor í lofti

Jhaa ég þori varla að skrifa það - en geri það samt, ég er ekki frá því að það sé komið vor í loftið. Flugurnar komnar á kreik og spáð hinu fínasta veðri, 14 stiga hita heyrði ég einhvers staðar! Spurning reyndar hvort það sé ekki bara sumarið sem sé að koma, svona miðað við hitastigið Wink

Annars á mín yndislega móðir afmæli á morgun, þann 16. Til lukku með daginn elsku mamma mín. Þau ætla að bruna upp í bústað og svo förum við uppeftir á föstudag og verðum yfir helgina. Það verður ljúft.

Við pabbi fórum í sundið í morgun í sól og blíðu. Algjör draumur. Maður getur sko auðveldlega orðið háður þessu.

Ég er alveg að geispa golunni hérna núna svo ég ætla að henda mér upp í rúm. Bíð ykkur góðrar nætur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Smilla

Til hamingju með skvísuna hana mömmu þína á morgun

Smilla, 15.4.2008 kl. 22:38

2 identicon

Ég hugsaði þetta einmitt í dag þegar ég fann að vindurinn stakk ekki jafnmikið í andlitið og undanfarið. Komin suðræn sveifla í veðrið. Sagði það meira að segja upphátt í dag að það væri komið vor - vona að ég hafi ekki storkað örlögunum of mikið.

Dagbjört (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 00:12

3 identicon

Já nú er vonandi sumarið að koma!

Unnar birkir hans Palla á líka afmæli í dag....til hamingju með múttuna :)

kv frá Egs.

Heiða Árna (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 10:01

4 Smámynd: Úrsúla Manda

Takk stelpur mínar  

Úrsúla Manda , 16.4.2008 kl. 11:38

5 identicon

Veit ekki hvort að þú trúir þessu en það er byrjar að selja ís í vél niðrá olís (held ég) Við mamma vorum að labba og sáum e-rja rúnta með ís í hönd..mér sýndist þetta vera ís í vél...ef svo er þá eruð við að fara ÞANGAÐ!!! :)

JókaSmára (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 18:14

6 Smámynd: Smilla

Hvað sagði ég ekki? Prófaðu að blogga um að það vanti Subway eða Quiznos - kannski opnar annar hvort þá nokkrum dögum síðar.

Smilla, 16.4.2008 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Úrsúla Manda
Úrsúla Manda

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 694

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband